Category: Óflokkað
-
SORGARFRÉTT
Andlát og arfleifð, fimmti kafli greinarinnar um Niels Bohr og Íslendinga var birtur hér í gær. Færslan hvarf hins vegar með húð og hári í dag, fimmtudaginn 23. febrúar 2023. Ástæðuna þekki ég ekki, en Upplýsingaþjónustu Háskóla Íslands, sem heldur utan um þennan vef, hefur þegar verið gert viðvart. Nú er bara að krossa fingur…
-
Ný fésbókarsíða: Saga raunvísinda
Ég hef nú opnað fésbókarsíðu, þar sem hægt er að fylgjast með nýjum bloggfærslum á þessari síðu. Að auki má reikna með, að ég kynni þar annað efni, sem ég tel áhugavert og/eða gagnlegt fyrir sögu raunvísinda á Íslandi. Nýja síðan heitir Saga raunvísinda og með því að „líka við“ hana og gera hana þannig…
-
Íslendingar sem birt hafa rit um sögu raunvísinda – Drög
Athugið að skráin er ekki tæmandi – Færsluhöfundur þiggur með þökkum allar athugasemdir sem og ábendingar um viðbætur. Með tíð og tíma er skránni ætlað að ná yfir sem flesta Íslendinga, sem birt hafa ritsmíðar um sögu raunvísinda (þar á meðal stærðfræði), án tillits til þess hvort þær eru frumsamdar, þýddar eða endursagðar. Ekki verður…
-
Nokkur gagnleg rit um vísindasögu
Eins og í færslunum Raunvísindamenn og vísindasagan og Íslendingar sem birt hafa rit um sögu raunvísinda mótast eftirfarandi skrár talsvert af áhugasviðum færsluhöfundar (stjörnufræði, eðlisfræði og stærðfræði). Ábendingar, sem bæta úr þessu, eru því vel þegnar. Ritin í listunum geyma yfirleitt góðar heimildaskrár, sem nota má til að kafa dýpra í viðkomandi efni. Hvers vegna…
-
Um merkisafmæli Stefáns Björnssonar og Gísla Einarssonar á árinu 2021. Ásamt inngangi um yfirborðsbylgjur
Í nóvemberhefti tímaritsins Physics Today er mjög fróðleg grein um yfirborðsbylgjur, sem ég hafði loks tíma til að lesa í gær: N. Pizzo, L. Deike & A. Ayet, 2021: How does the wind generate waves? Strax og ég sá titilinn, rifjaðist það upp fyrir mér, að fyrir rúmum 225 árum sendi Stefán Björnsson inn ritgerð(ir)…
-
Greinaflokkur um stjarneðlisfræði og heimsfræði á Íslandi
Fyrstu færslunar í þessum greinaflokki fjalla nær eingöngu um alþýðufræðslu og kennslu í stjarneðlisfræði og heimsfræði, aðallega vegna þess, að vísindalegar rannsóknir á þessum sviðum hófust ekki hér á landi fyrr en talsvert var liðið á seinni hluta tuttugustu aldar. Rétt er að geta þess, að höfundurinn er hvorki sagnfræðingur né heimspekingur og nálgast því…
-
Sturla Einarsson stjörnufræðiprófessor í Berkeley
Þetta stutta yfirlit var upphaflega birt í september 2018 sem hluti af færslunni Halastjörnur fyrr og nú – 3. Tuttugasta öld. Sérstök færsla um Sturlu og störf hans er í vinnslu og því verður aðeins minnst á örfá atriði hér. Sturla Einarsson Sturla fæddist í Skagfirði árið 1879, sonur hjónanna Jóhanns Einarssonar og Elínar…
-
Stjarneðlisfræðingurinn Gísli Hlöðver Pálsson, öðru nafni Jack G. Hills
Þetta stutta yfirlit var upphaflega birt í september 2018 sem hluti af færslunni Halastjörnur fyrr og nú – 3. Tuttugasta öld. Gísli Hlöðver Pálsson Foreldrar Keflvíkingsins Gísla Hlöðvers voru þau Kristín Gísladóttir og Páll S. Pálsson. Árið 1949 fluttist hann til Bandaríkjanna með móður sinni, þá sex ára gamall. Í hinu nýja landi tók…