Category: Stjörnufræði

  • Raunvísindamenn og vísindasagan

    Almennur inngangur Stundum er því haldið fram, að áhugi á vísindasögu sé eins og ólæknandi veirusjúkdómur, sem einkum leggist á fáeina einstaklinga í hópi raunvísindamanna. Það kann að vera nokkuð til í þessu, því margir af fremstu vísindasagnfræðingum heims eru jafnframt vel menntaðir í raunvísindum (athugið að samkvæmt íslenskri hefð er stærðfræði hér talin til…

  • Tvö hundruð og fimmtíu ár frá stofnun embættis konunglegs stjörnumeistara á Íslandi

    Vorið 1772 skipaði Kristján konungur sjöundi Borgfirðinginn Eyjólf Jónsson (1735-1775) stjörnumeistara á Íslandi (Observator paa Vort Land Island). Eyjólfur hafði áður verið aðstoðarmaður Christians Horrebow við stjörnuathuganir í Sívalaturni, og síðan framkvæmt ýmsar mælingar hér á landi, samhliða því að vera ritari landsnefndarinnar, sem hér starfaði á áunum 1770-71. Í erindisbréfi Eyjólfs frá 1772 eru…

  • Ýmsar niðurstöður úr athugunum Rasmusar Lievog hér á landi

    Athugið að listinn er ekki tæmandi Lievog, R., 1779-1794: Astronomiske og Meteorologiske Observationer 1779–1794. Handritadeild Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns: ÍB. 234 a og b, 4to. Bugge, T., 1784: Observationes astronomicae annis 1781, 1782 & 1783 (§71, bls. xciv-xcv og §81, bls. cxv-cxx): Stjörnuathuganir frá árunum 1779 til 1783 ásamt veðurathugunum, norðurljósaathugunum og fl. Bugge, T., 1784:…

  • NORDITA: Saga Norrænu stofnunarinnar í kennilegri eðlisfræði fyrstu 50 árin

    Út er komin bókin Nordita – The Copenhagen Years: A Scrapbook, í ritstjón þeirra Helle Kiilerich, Christophers Pethick, Bens Mottelson og Einars Guðmundssonar. Bókin er 330 síður í stærðinni A4. Auk ítarlegra inngangsgreina um aðdragandann að stofnun Nordita árið 1957 og þróun stofnunarinnar næstu 50 árin, inniheldur verkið ýmsar skrár og um hundrað stuttar ritgerðir…

  • Tímamót í þróun stærðfræðilegra lærdómslista á Íslandi: Björn Gunnlaugsson hefur kennslu við Bessastaðaskóla árið 1822

    Björn Gunnlaugsson lauk öðru lærdómsprófi við Kaupmannahafnarháskóla árið 1818, eftir að hafa meðal annars lært stærðfræði hjá C.F. Degen, stjörnufræði hjá H.C. Schumacher og eðlisfræði hjá H.C. Ørsted. Hann hélt síðan áfram að kynna sér stærðfræðilegar lærdómslistir við skólann, að mestu á eigin spýtur, en hefur þó sennilega notið góðrar aðstoðar Degens. Björn stefndi þó…

  • Gagnlegar heimildir um Björn Gunnlaugsson (1788-1876)

    Ágúst H. Bjarnason, 1938: Um Björn Gunnlaugsson. Benedikt S. Benedikz, 2003: The Wise Man with the Child’s Heart: Björn Gunnlaugsson, 1788–1876. Einar Benediktsson, 1930: „Björn Gunnlaugsson“. Í ljóðabókinni Hvammar, Reykjavík 1930. Einar H. Guðmundsson, 2003: Björn Gunnlaugsson og náttúruspekin í Njólu. Einar H. Guðmundsson, 2019:  H. C. Örsted, bein og óbein áhrif hans á Íslendinga…

  • Prentuð verk Björns Gunnlaugssonar (1788-1876)

        Frá Bessastaðaárunum: Björn Gunnlaugsson, 1822: Ræða flutt við setningu Bessastaðaskóla í október 1822 (Handrit: Lbs. 2119, 8vo. Fyrst prentað í Fréttabréfi Íslenzka stærðfræðafélagsins, 1tbl. 5. árg. 1993, bls. 54-66. Sjá einnig inngang eftir Reyni Axelsson, bls. 52-53). Björn Gunnlaugsson, 1827: Halastjarnan 1826. (Þessi halastjarna var án efa sú, sem nú er kölluð C/1826…

  • Látnir samferðamenn

    Hér eru taldir upp íslenskir raunvísindamenn (einkum eðlisfræðingar, efnafræðingar, stærðfræðingar og stjörnufræðingar), sem ég hef kynnst í gegnum tíðina, en eru nú horfnir yfir móðuna miklu. Skráin er fyrst og fremst ætluð mér sjálfum til að varðveita minningar um burtkallaða vini og kunningja, samstarfsmenn, kennara, nemendur og aðra raunvísindamenn, sem ég átti samleið með um…

  • Íslenskir stærðfræðingar, eðlisfræðingar og stjörnufræðingar til 1960: Skrá með inngangi og eftirmála

    Færslan er enn í vinnslu og verður uppfærð eftir þörfum   Inngangur Það var ekki fyrr en á nítjándu öld, sem hinar ýmsu verkfræði- og raunvísindagreinar urðu almennt að sjálfstæðum námsgreinum við helstu háskóla í Evrópu og Ameríku. Breytingin olli því meðal annars, að menn gátu nú loksins útskrifast með háskólagráðu á sviðum eins og…

  • Stjarneðlisfræði og heimsfræði á Íslandi 3: Tímabilið 1870-1930 (a) Nýja stjörnufræðin berst til landsins

    Yfirlit um greinaflokkinn Eins og fram kom í fyrri færslu, má rekja sögu stjarneðlisfræðinnar rúm 400 ár aftur í tímann, til upphafs þeirrar fræðigreinar, sem við nú köllum kennilega stjarneðlisfræði. Hins vegar líta margir sagnfræðingar og stjarnvísindamenn svo á, að nútíma stjarneðlisfræði hafi fyrst komið til sögunnar um miðbik nítjándu aldar, þegar ný tækni, byggð…