Category: Stjörnufræði
-
Eyjólfur Jónsson: Fyrsti íslenski stjörnufræðingurinn
Upplýsingarmaðurinn Eyjólfur Jónsson verður að teljast fyrsti eiginlegi stjörnufræðingur Íslendinga. Hann lauk guðfræðiprófi frá Hafnarháskóla í árslok 1766 og var síðan aðstoðarstjörnumeistari í stjörnuathugunarstöðinni í Sívalaturni í nokkur ár. Þar hlaut hann þjálfun í notkun mælitækja og margvíslegum stjarnfræðilegum útreikningum. Vorið 1770 sneri hann aftur til Íslands sem ritari landsnefndarinnar fyrri og jafnframt var honum…
-
Sólblettarannsóknir Christians Horrebow í Sívalaturni með þátttöku Eyjólfs Jónssonar og Rasmusar Lievog
Fyrstu rituðu heimildirnar um sólbletti eru kínverskar og frá því á áttundu öld f.Kr. Á Vesturlöndum sáust þessi fyrirbæri einstaka sinnum, allt frá dögum Forn-Grikkja fram á sautjándu öld, án þess þó að menn tengdu þau endilega beint við sólina. Oftast var talið, að um væri að ræða þvergöngur föruhnatta, einkum Merkúríusar, og umfjöllun um…
-
Í tilefni af sextíu ára afmæli NORDITA
Í þessum mánuði eru liðin sextíu ár frá því Nordisk Institut for Teoretisk Atomfysik (NORDITA, nú oftast ritað Nordita) hóf starfsemi sína í Kaupmannahöfn. Íslendingar voru með strax frá upphafi, eins og nánar verður sagt frá hér á eftir. Eftir glæsilega fimmtíu ára dvöl í Kaupmannahöfn var stofnunin flutt til Stokkhólms, af ástæðum sem vikið…
-

Fyrsta prentaða ritgerðin um stjörnufræði eftir íslenskan höfund
Höfundur þessa verks var Hafnarstúdentinn Gísli Þorláksson (1631-1684), sem síðar varð eftirmaður föðurs síns, Þorláks Súlasonar, í biskupsembætti á Hólum. Ritgerðin er svokölluð dispútatía, stúdentafyrirlestur sem haldinn var við Háskólann í Kaupmannahöfn í ársbyrjun 1651. Gísli Þorláksson í Kaupmannahöfn 1649-1652 Að loknu námi í Hólaskóla sigldi Gísli til Kaupmannahafnar haustið 1649. Með skipinu var einnig…
-

Tuttugu gjöful ár með Norræna stjörnusjónaukanum
Eins og fram kom í fyrri færslu eru nú liðin tuttugu ár frá því Íslendingar gerðust aðilar að norrænu samstarfi um stjörnusjónauka á Strákakletti (Roque de los Muchachos) á La Palma, einni af Kanaríeyjum. Aðdragandinn að formlegri aðild var bæði langur og strangur og enn eru mörg atriði í þeirri sögu óskráð. Í pistli, sem Sigurður…
-

Einkennismynd vefsíðunnar – Norræni stjörnusjónaukinn
Myndin efst á vefsíðunni sýnir þyrpingu stjörnusjónauka á Strákakletti á La Palma, einni af Kanaríeyjum. Lengst til vinstri er Norræni sjónaukinn Hægra megin við hann er breskur sjónauki sem kenndur er við William Herschel. Lengra í burtu hægra megin eru nokkrir minni sjónaukar. Norræni stjörnusjónaukinn hefur að hluta verið í eigu Háskóla Íslands frá 1997.…