Category: Eðlisfræði
-
Frá höfuðskepnum til frumeinda og öreinda: Íslendingar og kenningar um innstu gerð og eðli efnisins I
Inngangur ásamt yfirliti um tímabilið frá síðmiðöldum til lærdómsaldar Í byrjun júlí árið 2012 fylgdist öll heimsbyggðin með af athygli, þegar tilkynnt var, að hin svokallaða Higgs-eind hefði loksins fundist í flóknum tilraunum með LHC, sterkeinda-hraðlinum mikla í CERN. Niðurstaðan var lokahnykkurinn í viðamiklu átaki eðlisfræðinga til að sannreyna staðallíkan öreindafræðinnar, kenningu sem gefur nær…
-
Saga efniskenninga – Ritaskrár
Fylgirit með greinaflokknum Frá höfuðskepnum til frumeinda og öreinda: Íslendingar og kenningar um innstu gerð og eðli efnisins. DRÖG A. Yfirlitsrit um sögu efniskenninga B. Dæmi um vel þekkt rit í Danaveldi til 1850 C. Nokkur fróðleg rit á íslensku 1780 – 2020 Sjá einnig skrána Nokkur gagnleg rit um vísindasögu. A. Yfirlitsrit um sögu…
-
Í tilefni Nóbelsverðlaunanna í eðlisfræði 2022
Í gær bárust þau ánægjulegu tíðindi að Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði 2022 hefðu fallið í skaut þriggja eðlisfræðinga „fyrir tilraunir með skammtatengdar ljóseindir, sem staðfestu brot á ójöfnum Bells og lögðu grunn að skammtaupplýsingafræði“ Verkum verðlaunahafanna er lýst nánar í tveimur greinum frá Nóbelsstofnuninni: Popular science background: How entanglement has become a powerful tool. Scientific Background:…
-
Raunvísindamenn og vísindasagan
Almennur inngangur Stundum er því haldið fram, að áhugi á vísindasögu sé eins og ólæknandi veirusjúkdómur, sem einkum leggist á fáeina einstaklinga í hópi raunvísindamanna. Það kann að vera nokkuð til í þessu, því margir af fremstu vísindasagnfræðingum heims eru jafnframt vel menntaðir í raunvísindum (athugið að samkvæmt íslenskri hefð er stærðfræði hér talin til…
-
Tvö hundruð og fimmtíu ár frá stofnun embættis konunglegs stjörnumeistara á Íslandi
Vorið 1772 skipaði Kristján konungur sjöundi Borgfirðinginn Eyjólf Jónsson (1735-1775) stjörnumeistara á Íslandi (Observator paa Vort Land Island). Eyjólfur hafði áður verið aðstoðarmaður Christians Horrebow við stjörnuathuganir í Sívalaturni, og síðan framkvæmt ýmsar mælingar hér á landi, samhliða því að vera ritari landsnefndarinnar, sem hér starfaði á áunum 1770-71. Í erindisbréfi Eyjólfs frá 1772 eru…
-
Ýmsar niðurstöður úr athugunum Rasmusar Lievog hér á landi
Athugið að listinn er ekki tæmandi Lievog, R., 1779-1794: Astronomiske og Meteorologiske Observationer 1779–1794. Handritadeild Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns: ÍB. 234 a og b, 4to. Bugge, T., 1784: Observationes astronomicae annis 1781, 1782 & 1783 (§71, bls. xciv-xcv og §81, bls. cxv-cxx): Stjörnuathuganir frá árunum 1779 til 1783 ásamt veðurathugunum, norðurljósaathugunum og fl. Bugge, T., 1784:…
-
NORDITA: Saga Norrænu stofnunarinnar í kennilegri eðlisfræði fyrstu 50 árin
Út er komin bókin Nordita – The Copenhagen Years: A Scrapbook, í ritstjón þeirra Helle Kiilerich, Christophers Pethick, Bens Mottelson og Einars Guðmundssonar. Bókin er 330 síður í stærðinni A4. Auk ítarlegra inngangsgreina um aðdragandann að stofnun Nordita árið 1957 og þróun stofnunarinnar næstu 50 árin, inniheldur verkið ýmsar skrár og um hundrað stuttar ritgerðir…
-
Tímamót í þróun stærðfræðilegra lærdómslista á Íslandi: Björn Gunnlaugsson hefur kennslu við Bessastaðaskóla árið 1822
Björn Gunnlaugsson lauk öðru lærdómsprófi við Kaupmannahafnarháskóla árið 1818, eftir að hafa meðal annars lært stærðfræði hjá C.F. Degen, stjörnufræði hjá H.C. Schumacher og eðlisfræði hjá H.C. Ørsted. Hann hélt síðan áfram að kynna sér stærðfræðilegar lærdómslistir við skólann, að mestu á eigin spýtur, en hefur þó sennilega notið góðrar aðstoðar Degens. Björn stefndi þó…
-
Gagnlegar heimildir um Björn Gunnlaugsson (1788-1876)
Ágúst H. Bjarnason, 1938: Um Björn Gunnlaugsson. Benedikt S. Benedikz, 2003: The Wise Man with the Child’s Heart: Björn Gunnlaugsson, 1788–1876. Einar Benediktsson, 1930: „Björn Gunnlaugsson“. Í ljóðabókinni Hvammar, Reykjavík 1930. Einar H. Guðmundsson, 2003: Björn Gunnlaugsson og náttúruspekin í Njólu. Einar H. Guðmundsson, 2019: H. C. Örsted, bein og óbein áhrif hans á Íslendinga…
-
Prentuð verk Björns Gunnlaugssonar (1788-1876)
Frá Bessastaðaárunum: Björn Gunnlaugsson, 1822: Ræða flutt við setningu Bessastaðaskóla í október 1822 (Handrit: Lbs. 2119, 8vo. Fyrst prentað í Fréttabréfi Íslenzka stærðfræðafélagsins, 1tbl. 5. árg. 1993, bls. 54-66. Sjá einnig inngang eftir Reyni Axelsson, bls. 52-53). Björn Gunnlaugsson, 1827: Halastjarnan 1826. (Þessi halastjarna var án efa sú, sem nú er kölluð C/1826…