Category: Eðlisfræði

  • Nútíma raunvísindi á Íslandi: Fyrstu skrefin

    Allt frá því að land byggðist hafa Íslendingar lagt stund á þau viðfangsefni, sem við í dag köllum raunvísindi (þ.e. stærðfræði, stjörnufræði, eðlisfræði og efnafræði). Þetta á ekki síst við um stjörnufræði og stærðfræði og hafa mörg dæmi um slíka iðju verið rædd á þessari bloggsíðu og í heimildum, sem bent hefur verið á í…

  • Upphaf nútíma stjarnvísinda og íslensk alþýðurit

    Þetta veggspjald var sett upp á Vísindadegi VoNar, 25. október 2014. Það var eitt af fjórum, sem fjölluðu um sögu stjarnvísinda á Íslandi. Efni hinna hefur annaðhvort þegar verið tekið fyrir í færslum eða bíður frekari umfjöllunar.

  • Rasmus Lievog og stjörnuathuganirnar í Lambhúsum

    Í lok færslu um Eyjólf Jónsson stjörnumeistara var sagt frá aðdragandanum að komu eftirmanns hans, Rasmusar Lievog, til Íslands haustið 1779. Lievog starfaði hér við vægast sagt erfiðar aðstæður í rúman aldarfjórðung, eða til ársins 1805, þegar hann fluttist alfarinn til Kaupmannahafnar, sextíu og sjö ára gamall. Niðurstöður úr mælingum og athugunum Lievogs, bæði í…

  • Heimildir íslenskrar alþýðu um heimsmynd stjarnvísinda 1750-1850

    Í febrúar 2017 hélt ég erindi með þessu heiti á málþingi Félags um átjándu aldar fræði. Hér má finna kynninguna á erindinu og hér eru svo glærurnar sem notaðar voru við flutninginn.

  • Magnús Stephensen og náttúrunnar yndislegu fræði

    Hin áhrifamikli upplýsingarmaður, bókaútgefandi og embættismaður, Magnús Stephensen (1762-1833), var einn þeirra örfáu Íslendinga sem á áratugunum í kringum 1800 kynntu sér náttúrvísindi sérstaklega, bæði á námsárunum í  Kaupmannahöfn og síðar. Hann hafði á þeim brennandi áhuga og í anda upplýsingarinnar reyndi hann eftir megni að gefa löndum sínum smá innsýn í undraheim vísindanna með…

  • Aflfræði í verkum Stefáns Björnssonar

    Í félagaskrá Hins (konunglega) íslenska lærdómslistafélags segir um Stefán Björnsson (1721-98) að hann sé „Matheseos et Antiqvitt patriæ Studiosus“ (lærður í stærðfræði og fornfræðum föðurlandsins). Hann sá um fyrstu fræðilegu útgáfuna á Rímbeglu 1780 og sama ár kom út bók hans, Ferhyrningafræði. Hvatinn að seinna verkinu var sennilega margra ára starf hans sem reiknimeistari (Kalkulator) við…

  • Í tilefni af sextíu ára afmæli NORDITA

    Í þessum mánuði eru liðin sextíu ár frá því Nordisk Institut for Teoretisk Atomfysik (NORDITA, nú oftast ritað Nordita) hóf starfsemi sína í Kaupmannahöfn. Íslendingar voru með strax frá upphafi, eins og nánar verður sagt frá hér á eftir. Eftir glæsilega fimmtíu ára dvöl í Kaupmannahöfn var stofnunin flutt til Stokkhólms, af ástæðum sem vikið…

  • Fyrsta prentaða ritgerðin um stjörnufræði eftir íslenskan höfund

    Fyrsta prentaða ritgerðin um stjörnufræði eftir íslenskan höfund

    Höfundur þessa verks var Hafnarstúdentinn Gísli Þorláksson (1631-1684),  sem síðar varð eftirmaður föðurs síns, Þorláks Súlasonar, í biskupsembætti á  Hólum. Ritgerðin er svokölluð dispútatía, stúdentafyrirlestur sem haldinn var við Háskólann í Kaupmannahöfn í ársbyrjun 1651.   Gísli Þorláksson í Kaupmannahöfn 1649-1652 Að loknu námi í Hólaskóla sigldi Gísli til Kaupmannahafnar haustið 1649. Með skipinu var einnig…

  • Á aldarafmæli Þorbjörns Sigurgeirssonar

    Á aldarafmæli Þorbjörns Sigurgeirssonar

    Hinn 19. júní síðastliðinn voru liðin 100 ár frá fæðingu Þorbjörns Sigurgeirssonar prófessors (1917-1988). Þessi örlítið síðbúna færsla er helguð minningu þessa merka eðlisfræðings og brautryðjanda í raunvísindum á Íslandi. Stutt kynni mín af Þorbirni hófust haustið 1967, þegar ég sótt byrjendanámskeið hans í eðlisfræði  við Háskóla Íslands. Kennslubókin var hið þekkta verk Physics eftir…

  • Tuttugu gjöful ár með Norræna stjörnusjónaukanum

    Tuttugu gjöful ár með Norræna stjörnusjónaukanum

    Eins og fram kom í fyrri færslu eru nú liðin tuttugu ár frá því Íslendingar gerðust aðilar að norrænu samstarfi um stjörnusjónauka á Strákakletti (Roque de los Muchachos) á La Palma, einni af Kanaríeyjum. Aðdragandinn að formlegri aðild var bæði langur og strangur og enn eru mörg atriði í þeirri sögu óskráð. Í pistli, sem Sigurður…