Category: Nítjánda öldin
-
Eðlisfræði Fischers, fyrsta eðlisfræðibókin sem kom út á íslensku
Viðbót, 5. maí 2021: Eðlisfræði Fischers er nú komin á vefinn: J. G. Fischer, 1852: Eðlisfræði. Þetta stutta yfirlit var upphaflega birt í september 2019 sem hluti af færslunni H. C. Örsted, bein og óbein áhrif hans á Íslendinga og upphaf kennslu í eðlisfræði og stjörnufræði við Reykjavíkurskóla. Þegar hin merka þýðing Magnúsar Grímssonar á…
-
Saga stjörnufræði og eðlisfræði á Íslandi frá miðöldum fram á tuttugustu og fyrstu öld – Nokkur rit eftir Einar H. Guðmundsson
Hér fyrir neðan eru slóðir á ýmis verk færsluhöfundar um sögu stjörnufræði og eðlisfræði á Íslandi. Í ritunum má finna tilvísanir í fjölda annarra heimilda, bæði íslenskar og erlendar. I Einar H. Guðmundsson, 2022: Raunvísindamenn og vísindasagan. Einar H. Guðmundsson, 2022: Íslendingar sem birt hafa rit um sögu raunvísinda. Einar H. Guðmundsson, 2022: Nokkur gagnleg rit um…
-
H. C. Örsted, bein og óbein áhrif hans á Íslendinga og upphaf kennslu í eðlisfræði og stjörnufræði við Reykjavíkurskóla
Á fyrri hluta nítjándu aldar voru þær greinar, sem við í dag köllum hugvísindi, allsráðandi í dönsku skólakerfi. Raunvísindi voru almennt í bakgrunni og yfirleitt aðeins kennd þar sem aðstaða og næg þekking var fyrir hendi. Sem öfgakennt dæmi má nefna, að stærðfræði var fyrst kennd í Bessastaðaskóla eftir heimkomu Björns Gunnlaugssonar árið 1822 og…
-
Þorkell Þorkelsson eðlisfræðingur, aðkoma hans að stofnun stærðfræðideildar og greinin um afstæðiskenninguna
Eins og fram kemur í færslunni Nútíma raunvísindi á Íslandi: Fyrstu skrefin var Þorkell Þorkelsson annar Íslendingurinn, sem útskrifaðist með háskólagráðu í eðlisfræði. Þrettán árum áður hafði sá fyrsti, Nikulás Runólfsson, lokið prófi frá sama skóla, danska Fjöllistaskólanum (Den Polytekniske Læreanstalt). Nikulás starfaði reyndar aldrei hér á landi og dó 1898, þá 47 ára. Helstu…
-
Halastjarnan mikla árið 1858 – Mælingar og hughrif í upphafi nýrra tíma í stjörnufræði
Um þessar mundir (júní 2018) eru liðin 160 ár frá því fyrst sást glitta í lítinn hnoðra á stjörnuhimninum í gegnum sjónauka í Flórens á Ítalíu. Á næstu mánuðum átti hnoðrinn eftir að þróast í eina fallegustu halastjörnu, sem sögur fara af. Mikil hrifning greip um sig meðal almennings í Evrópu og Bandaríkjunum og haustið 1858…
-
Nútíma raunvísindi á Íslandi: Fyrstu skrefin
Allt frá því að land byggðist hafa Íslendingar lagt stund á þau viðfangsefni, sem við í dag köllum raunvísindi (þ.e. stærðfræði, stjörnufræði, eðlisfræði og efnafræði). Þetta á ekki síst við um stjörnufræði og stærðfræði og hafa mörg dæmi um slíka iðju verið rædd á þessari bloggsíðu og í heimildum, sem bent hefur verið á í…
-
Upphaf nútíma stjarnvísinda og íslensk alþýðurit
Þetta veggspjald var sett upp á Vísindadegi VoNar, 25. október 2014. Það var eitt af fjórum, sem fjölluðu um sögu stjarnvísinda á Íslandi. Efni hinna hefur annaðhvort þegar verið tekið fyrir í færslum eða bíður frekari umfjöllunar.
-
Heimildir íslenskrar alþýðu um heimsmynd stjarnvísinda 1750-1850
Í febrúar 2017 hélt ég erindi með þessu heiti á málþingi Félags um átjándu aldar fræði. Hér má finna kynninguna á erindinu og hér eru svo glærurnar sem notaðar voru við flutninginn.
-
Magnús Stephensen og náttúrunnar yndislegu fræði
Hin áhrifamikli upplýsingarmaður, bókaútgefandi og embættismaður, Magnús Stephensen (1762-1833), var einn þeirra örfáu Íslendinga sem á áratugunum í kringum 1800 kynntu sér náttúrvísindi sérstaklega, bæði á námsárunum í Kaupmannahöfn og síðar. Hann hafði á þeim brennandi áhuga og í anda upplýsingarinnar reyndi hann eftir megni að gefa löndum sínum smá innsýn í undraheim vísindanna með…