Mindblown: a blog about philosophy.
-
Ýmsar niðurstöður úr athugunum Rasmusar Lievog hér á landi
Athugið að listinn er ekki tæmandi Lievog, R., 1779-1794: Astronomiske og Meteorologiske Observationer 1779–1794. Handritadeild Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns: ÍB. 234 a og b, 4to. Bugge, T., 1784: Observationes astronomicae annis 1781, 1782 & 1783 (§71, bls. xciv-xcv og §81, bls. cxv-cxx): Stjörnuathuganir frá árunum 1779 til 1783 ásamt veðurathugunum, norðurljósaathugunum og fl. Bugge, T., 1784:…
-
NORDITA: Saga Norrænu stofnunarinnar í kennilegri eðlisfræði fyrstu 50 árin
Út er komin bókin Nordita – The Copenhagen Years: A Scrapbook, í ritstjón þeirra Helle Kiilerich, Christophers Pethick, Bens Mottelson og Einars Guðmundssonar. Bókin er 330 síður í stærðinni A4. Auk ítarlegra inngangsgreina um aðdragandann að stofnun Nordita árið 1957 og þróun stofnunarinnar næstu 50 árin, inniheldur verkið ýmsar skrár og um hundrað stuttar ritgerðir…
-
Tímamót í þróun stærðfræðilegra lærdómslista á Íslandi: Björn Gunnlaugsson hefur kennslu við Bessastaðaskóla árið 1822
Björn Gunnlaugsson lauk öðru lærdómsprófi við Kaupmannahafnarháskóla árið 1818, eftir að hafa meðal annars lært stærðfræði hjá C.F. Degen, stjörnufræði hjá H.C. Schumacher og eðlisfræði hjá H.C. Ørsted. Hann hélt síðan áfram að kynna sér stærðfræðilegar lærdómslistir við skólann, að mestu á eigin spýtur, en hefur þó sennilega notið góðrar aðstoðar Degens. Björn stefndi þó…
-
Gagnlegar heimildir um Björn Gunnlaugsson (1788-1876)
Ágúst H. Bjarnason, 1938: Um Björn Gunnlaugsson. Benedikt S. Benedikz, 2003: The Wise Man with the Child’s Heart: Björn Gunnlaugsson, 1788–1876. Einar Benediktsson, 1930: „Björn Gunnlaugsson“. Í ljóðabókinni Hvammar, Reykjavík 1930. Einar H. Guðmundsson, 2003: Björn Gunnlaugsson og náttúruspekin í Njólu. Einar H. Guðmundsson, 2019: H. C. Örsted, bein og óbein áhrif hans á Íslendinga…
-
Prentuð verk Björns Gunnlaugssonar (1788-1876)
Frá Bessastaðaárunum: Björn Gunnlaugsson, 1822: Ræða flutt við setningu Bessastaðaskóla í október 1822 (Handrit: Lbs. 2119, 8vo. Fyrst prentað í Fréttabréfi Íslenzka stærðfræðafélagsins, 1tbl. 5. árg. 1993, bls. 54-66. Sjá einnig inngang eftir Reyni Axelsson, bls. 52-53). Björn Gunnlaugsson, 1827: Halastjarnan 1826. (Þessi halastjarna var án efa sú, sem nú er kölluð C/1826…
-
Um merkisafmæli Stefáns Björnssonar og Gísla Einarssonar á árinu 2021. Ásamt inngangi um yfirborðsbylgjur
Í nóvemberhefti tímaritsins Physics Today er mjög fróðleg grein um yfirborðsbylgjur, sem ég hafði loks tíma til að lesa í gær: N. Pizzo, L. Deike & A. Ayet, 2021: How does the wind generate waves? Strax og ég sá titilinn, rifjaðist það upp fyrir mér, að fyrir rúmum 225 árum sendi Stefán Björnsson inn ritgerð(ir)…
-
Látnir samferðamenn
Hér eru taldir upp íslenskir raunvísindamenn (einkum eðlisfræðingar, efnafræðingar, stærðfræðingar og stjörnufræðingar), sem ég hef kynnst í gegnum tíðina, en eru nú horfnir yfir móðuna miklu. Skráin er fyrst og fremst ætluð mér sjálfum til að varðveita minningar um burtkallaða vini og kunningja, samstarfsmenn, kennara, nemendur og aðra raunvísindamenn, sem ég átti samleið með um…
-
Þorvaldur Ólafsson eðlisfræðingur (1944-2016)
Minningargreinar I og II.
-
Guðmundur G. Bjarnason háloftafræðingur (1954-2003)
Minningargreinar.
-
Guðmundur Arnlaugsson stærðfræðingur (1913-1996)
Minningargreinar I, II, III og IV.
Got any book recommendations?